Jæja...... Eftir tvöhundruð færslur, tvö og hálft ár er sögu friðþjófs.blogspot.com lokið. Tilboði frá www.ifgroup.dk var tekið og hefur hugsnunum mínum verið fundið pláss undir liðnum, friðþjófs horn.Med venlig hilsen og takk fyrir lesturinn í gegnum tíðinna.Friðþjófur Helgi Gunnlaugsson Strandberg.
Hrós dagsins...... Fyrsti í hrósi: RÚVmbl og vísir vita víst ekki muninn á aðalbrautarstöðinni í kaupmannahöfn og odense. Hvernig dettur mönnum í hug að skrifa um upprennandi hriðjuverkamenn sem búa og starfa í odense, og birta svo mynd af túrhestum á lestarstöð í kaupmannahöfn. Rúvarar birtu að minnsta kosti mynd af Høstrup blokkinni í Vollsmose í fréttum sínum í dag.... Annar í hrósi: Danska lögganGott að stoppa þessa hriðjuverkamenn áður enn þeir fara úr upprenandi flokknum yfir í þraulvana atvinnumenn.... Þriðji í hrósi: skólinnFyrir að slá mann útaf laginu, setja mann í panikkast, stress og volæði strax á fyrsta degi. Ótrúlegt að takast þetta fimm annir í röð. Að minnsta kosti er maður kominn með reynslu að vinna sig uppúr þessu.
Yfir mig kom bloggandi frá bloglandi.... Þá er búið að sameina hópin, hóp sem samanstendur af dönum, íslendingum, írönum, tamílum, hálf þjóðverjum, hálf grænlendingum, innfæddum grænlendingum sem eru samt danir, vestfirðingum og eitthverjir sem ég er ekki allveg viss hvaðan koma. Já þið gátið rétt skólinn er byrjaður hjá mér. ... Savar mætti til landsins, tókst víst hálf ílla að finna odense. Það voru víst eitthverjir opnir barir í kaupmannahöfn sem flækstust um fætur hans. Ég hélt alltaf að hann væri fastur í Odd size bagage, bíðandi eftir að eitthver nennti að sækja hann.... Punktur
Ísland..... Það verður spennandi þegar maður nemur þar land að nýju, það á eftir að taka tíma til að aðlagast þjóðfélagi á yfirsnúning á ný. Þjóðfélagi þar sem allt á að vera búið í gær, allt fer í taugarnar á öllum. Þjóðfélagi þar sem öllum finnast þeir merkinlegri enn aðrir, uppteknari enn aðrir, óþolinmóðari enn aðrir, hvað er með það að kunna ekki að fara í röð. Orðabókin lýgur, röð er ekki röð á íslandi, bara sjálfsblekking að ekki sé búið að breyta þessu.... Samt er maður innst inni spentur að komast heim aftur.
Upprisa haustsins...... Veit ekki afhverju, langaði bara allt í einu að byrja aftur. Ákvað í vor að taka mér pásu, ný sameiginleg heimasíða allra fjölskyldumeðlima átti að vera rétt handan við hornið, þetta átti að vera svona, og annað svoleiðis, og það þriðja eitthvernvegin öðruvísi. Enn þegar öll púsl voru kominn á lokastað var niðurstaðan núll, ekkert flæddi inná síðunna, ekki einu sinni gestir sem upp hafa gefist.... Fjölskyldusíðan staða. lén ok hýsing ok annað í vinnsluAð vísu komnar hugmyndir sem út gæti ræst, tekst vonandi í næsta mánuði.... Skólinn, mig/mér ( gott að fá komment hvort er það rétta) er farið að hlakka til. Búið er að sameina skólan min eitthverjum smáskóla út í skógi, sem maður tekur ekki einu sinni eftir þegar maður keyrir aðalgötuna, enda ekki nema 130.000 fm og 15000 nemendur þar. Samt spennandi hvort það verði ekki uppbygging af þessu, ekki niðurnísla og eyðinlegging á góðum skóla, eins og átti sér stað í höfðahverfinu í rvk um árið er dregið var í dilka.... Magni, vona að hann detti ekki út í kvöld, samt finnst mér hann eiga betra skilið enn þennan samansaum af sveittum fortíðarrokurum, sem vantar athygli/atvinnu. Gæti samt komið honum langt, ef ekki með supernova, þá á sjálfsdáðum.... Voða hvað íslendingum tekst stundum að pyrra þessa dani, Haraldi Sigurðs hent fyrir lest, dagblaða markaðurinn í uppnámi, nyhedsavisen á leiðinni. Best að öllu að senda bara út eitt eintak, allt í plati og hætta svo. Danskir viðskiptapésar gera nú mikið uppúr því að kasta leðju á allt sem íslandi kemur við. Ótrúlegt hvað menn geta drepist úr minniháttarkend. Er ekki kominn tími til, er ekki búið að skipuleggja þessa innrás í 61 ár, ég hélt það. ... Uppí tré. Sótti Kristínu í skólan í dag og átti í stökustu vandræðum með að finna hana. Heyrði svo eftir góða leit á útisvæðinnu að eitthver kallaði á á mig. Var þá ekki stelpan í tæpra 3 metra hæð að týna tómata. Ótrúlegt hvað danskt menntakerfi er stundum öðruvísi enn það íslenska, stundum er miklu meiri slaki enn á því íslenka, meðan annað er í miklu meiri skorðum heldur enn það sem gerist heima.
Úps og það er próftörn núna...
Minister of the icelandic kýr í Irma...
... Það er best að hamstra áður en hinir íslendingarnir komast í þetta.
Áfram gakk...... Í fréttum er helst að Benni er kominn með fuglaflensuna. Greinst hefur fuglaflensa í alífuglum skammt frá íbúðarhúsi hans á austurfjóni. Reyndist Benni hálf slappur í gær, enn staðráðinn að ná þessu úr sér. Fólk á förnum vegi er vinnsamlegast beðið að setja upp grímur er það kemmst í nálægð við bæinn Kerteminde.... Að spá í nám? Drífið ykkur í rafmagnstæknifræði, sterkstraum. Atvinnumöguleikarnir er mjög góðir heima á íslandi og ekki síðri hér. Eftir 10 ár er spáð að bara orkufyrirtækjunum í danmörku vanti alls 500 sterkstraumstæknifræðinga, og þá er allur einkabrasinn eftir.... Hvað varð um sumarið, það kom, enn svo fór það bara. Hvað gerðist eiginlega???... Þessi síða fer að líða undir lok, enn bíðið bara, nýir spennandi hlutir framundan.... Fjölskyldu fólkinu í kotinu hefur fækkað síðustu daga, Krístinn farinn til íslands og við aðeins þrjú eftir, eins og það hafi verið slökkt á heimilinnu, allt svo hljótt.... Litla stúlkan verður skírð í sumar. Ef ykkur vantar dagsetningunna þá bendi ég á síðunna hennar Ingu, ég mann bara ekki svona hluti.... Rúmur mánuður þar til sumarfríið hefst, er að stressast mjög yfir þessum prófnum, enn hlakkar mikið til þegar þeim líkur.... Jæja nóg að sinni.